Unglingar


Páskarnir eru elsta hátíđ kristinna manna en ţá minnast ţeir krossfestingar og upprisu Krists.

Tímasetning páska og kristilegra hátíđa, sem tengjast ţeim, er reiknuđ út frá tunglmánuđi líkt og tíđkast í gyđingdómi og getur páskahelgin falliđ á tímabiliđ frá 22. mars til 25. apríl.

Páskar kristinna manna eru haldnir um svipađ leyti og páskar gyđinga enda var Kristur handtekinn og krossfestur skömmu eftir ađ hafa neytt páskamáltíđarinnar međ lćrisveinum sínum. Páskahátíđ gyđinga, sem á hebresku kallast Pasach, er haldin til minningar um brottförina úr Egyptalandi og ţađ ađ Drottinn hljóp yfir hús Ísraelsmanna er hann deyddi frumburđi Egypta.

Taliđ er ađ páskahátíđin eigi sér ţó mun eldri rćtur međal gyđinga sem vorhátíđ. Ţađ sama á viđ í Evrópu ţar sem hin kristna hátíđ blandađist saman viđ eldri vorhátíđir. Enn ţann dag í dag má rekja ýmis páskatákn til ţessara heiđnu hátíđa svo sem páskalambiđ, páskaegg og páskakanínur en öll tengjast ţau vorkomunni međ skýrum ţćtti.

Einnig má sjá merki fornra vorhátíđa í nöfnum hátíđarinnar, bćđi á ensku og ţýsku. Ţannig kallast hún "Easter" á ensku og "Ostern" á ţýsku en bćđi nöfnin eru af sömu rót og orđiđ "austur", átt sólaruppkomunnar. Ţá telja sumir ađ nöfnin eigi rćtur ađ rekja til nafns fornrar vorgyđju. Íslenska orđiđ "páskar" er hins vegar dregiđ af hebreska orđinu "pasach", líkt og latneska heitiđ "pascha".

Langafasta og dymbilvika

Ţađ er gamall siđur međal kristinna manna ađ fasta á kjöt í fjörutíu daga fyrir páska og minnast ţannig föstu Krists í óbyggđunum. Sprengidagur er síđasti dagur fyrir lönguföstu en nafn hans vísar til ţess ađ fólk vildi borđa vel fyrir föstuna.

Í kristinni trú inniheldur páskavikan, sem kölluđ er dymbilvika, helgustu daga ársins. Pálmasunnudagur er fyrsti dagur dymbilviku. Hann er haldinn sunnudaginn fyrir páska til minningar um ţađ ađ Jesús reiđ inn í Jerúsalem til ađ halda páskahátíđ gyđinga. Nafniđ má rekja til ţess ađ fólk fagnađi honum og lagđi pálmagreinar í götu hans.

Fimmtudagur í dymbilviku nefnist skírdagur. Ţá minnast kristnir menn ţess er Jesús neytti síđustu kvöldmáltíđarinnar međ lćrisveinum sínum. Lýsingarorđiđ "skír" merkir hreinn og vísar hér bćđi til ţess ađ Jesús ţvođi fćtur lćrisveina sinna og til hreinsunar sálarinnar en dagurinn hefur í Kristni öđlast sess sem dagur iđrunar.

Samkvćmt kristinni trú var Jesús krossfestur á föstudeginum langa. Nafniđ vísar til hinnar löngu pínu Krists á krossinum. Á ensku kallast dagurinn hins vegar "Good Friday" og er ţar vísađ til ţess ađ hann var upphaf fagnađarerindindins.

Páskadagur er ein mesta hátíđ kristinna manna en ţá fagna ţeir ţví ađ Jesús reis upp frá dauđum. Samkvćmt ţjóđtrú dansar sólin af gleđi nokkur augnablik á páskadagsmorgun, á nákvćmlega sömu stundu og Jesús reis upp frá dauđum.

Uppstigningardagur er haldinn 40 dögum eftir páska og hvítasunna tíu dögum síđar. Samkvćmt frásögn Biblíunnar steig Jesús upp til himna á uppstigningardag og sendi lćrisveinum sínum heilagan anda á hvítasunnu.