Egill Örn Egilsson er meðal fimm kvikmyndatökumanna sem tilnefndir eru til ACS (American Society of Cinematographers) verðlaunanna bandarísku, sem veitt eru ár hvert þar vestra.
Egill er tilnefndur fyrir kvikmyndatöku í sjónvarpsþáttunum CSI: Miami, sem sýndir hafa verið hér á landi.
Egill er einn helsti tökumaður þáttanna og hefur jafnframt leikstýrt nokkrum þeirra, að því er segir á vef Lands og sona.
Verðlaunin verða veitt 18. febrúar næstkomandi.