Spáð 55 stiga frosti

Svetlana Baranova með eins árs son sinn, Styopa, vafin í …
Svetlana Baranova með eins árs son sinn, Styopa, vafin í teppi á heimili þeirra skammt frá Krasnojarsk í Síberíu. Reuters

Spáð er allt að 55 stiga frosti í Síberíu næstu daga og gaf rúss­neska al­manna­varn­aráðuneytið út aðvör­un í dag vegna kuld­ans. Meðal­hiti í borg­um í Síberíu á þess­um árs­tíma er á bil­inu 15-39 stiga frost, en sam­kvæmt spám gæti mikið kuldakast staðið í viku.

Í viðvör­un ráðuneyt­is­ins seg­ir að þessi mikli kuldi geti leitt til dauðsfalla, valdið kali, gert heim­ili raf­magns­laus, raskað sam­göng­um, aukið tíðni um­ferðarslysa og jafn­vel eyðilagt hús.

Tveir hafa þegar lát­ist í Irk­utsk í Mið-Síberíu vegna kulda, að því er rúss­neska rík­is­sjón­varpið greindi frá. Yfir 30 hafa leitað á sjúkra­hús vegna kals.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert