Tugir létust í sjálfsmorðsárás í Írak

Að minnsta kosti 25 létu lífið og 20 særðust þegar maður gerði sjálfsmorðsárás á hóp pílagríma, sem voru á göngu á þjóðvegi í átt að Karbala, helgri borg sjía-múslima.

Fyrr í morgun var einnig ráðist á sjía-múslima með handsprengjum og skotvopnum í hverfi sunní-múslima í Bagdad. Þar létu þrír lífið og 36 særðust. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert