Öreindatilraun fór vel af stað

AP

Vísindamenn í CERN, evrópsku rannsóknamiðstöðinni í öreindafræði í Genf, segja að skot fyrstu öreindanna, inn í 27 km göng sem liggja að heimsins stærsta öreindahraðli, í morgun hafi gengið mjög vel. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Verkefnastjórinn Lyn Evans, sem gaf skipunina um að skjóta öreindunum af stað, segir upphaf verkefnisins lofa góðu en tilgangur þess er að komast nær því að skilja gerð alheimsins. Níu þúsund eðlisfræðingar munu taka þátt í tilrauninni en efasemdamenn hafa haldið því fram að tilraunin muni leiða til heimsendis.

Nokkrir hraðlar koma við sögu í tilrauninni, fyrst línuhraðall, sem skýtur eindunum í lítinn hringhraðal. Þaðan fara þær inn í tvo róteindasamhraðla (PS og SPS á korti), þar sem þær ná enn meiri hraða.Að því loknu er þeim skotið inn í sterkeindahraðal. Í honum er öreindunum safnað saman í sérstakan geymsluhring þar sem þær hringsóla nærri ljóshraða.

Er þar um að ræða tvo hringi með brautarstefnu hvor á móti öðrum. Staðirnir þar sem þær rekast á  eru fjórir (ATLAS, ALICE, LHC-b og CMS) og fer gagnaöflunin fram við árekstrasvæðin. Þar er skoðað hvað kemur út úr árekstrum öreindanna, hvaða eindir verða til við árekstur þeirra og hverjir  eiginleikar þeirra eru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka