Eldhætta af algengum tegundum uppþvottavéla

Raftækjafyrirtækið Electrolux leitar nú að eigendum 5.600 uppþvottavéla sem eldhætta getur stafað af. Kviknað hefur í 16 uppþvottavélum, að því er norskir fjölmiðlar greina frá.

Tegundirnar sem um ræðir eru Electrolux, Zanussi, AEG og Husqvarna og voru þær framleiddar frá júní 2006 til og með júní 2007, að því er segir í tilkynningi frá Electrolux. Grunur leikur á galla í rafkerfi vélanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert