Fyrstu réttarhöldin í umfangsmiklum málaferlum gegn félögum meints hægri-öfgahóps, sem grunaðir eru um að hafa skipulagt umfangsmikil hryðjuverk með það að markmiði að steypa þýsku ríkisstjórninni af stóli, hófust í Stuttgart í dag.
Níu manns úr hópnum, sem er undir forystu viðskiptamannsins Heinrich XIII Reuss, munu mæta fyrir dóminn í dag.
Á meðal þeirra er sérsveitarmaður, fyrrverandi hægriflokksmaður, stjörnuspekingur og þekktur matreiðslumaður.
Níumenningarnir eru ákærðir fyrir að hafa undirbúið valdarán til að steypa af stóli þýsku ríkisstjórninni, en um er að ræða eitt stærsta nýlega málið í Þýskalandi er varðar ofbeldi öfgahægrimanna.
Embættismenn í landinu segja að slík mál séu orðin ein stærsta öfgaógnin í landinu.
Vegna umfangs réttarhaldanna og þarfar á aukinni öryggisgæslu er réttað í málinu í þremur mismunandi dómum í Þýskalandi.
Réttarhöld yfir Reuss, sem átti að verða settur í embætti þjóðhöfðingja eftir meint valdarán, fara fram í Frankfurt í maí, en þriðju réttarhöldin hefjast í München í júní.