Sólarorka verði eini orkugjafi Vatíkansins

Ekki kom fram í bréfinu hvenær til stæði að koma …
Ekki kom fram í bréfinu hvenær til stæði að koma virkjuninni á laggirnar, en að virkjunin myndi duga til að mæta orkukröfum Vatíkansins. AFP/Filippo Monteforte

Sólarorka verður eini orkugjafi Vatíkansins eftir að Frans páfi fyrirskipaði framkvæmd á sólarorkuveri sem mun verða smáríkinu alfarið út um þá orku sem það þarf.  

Fyrirskipunin er hluti af aðgerðum Vatíkansins í þágu loftslagsmála og birtist í opinberu bréfi páfans sem hann gaf út í dag. 

„Við þurfum að taka umbreytingum í átt að sjálfbærri þróun og draga úr losun gróðurhústegunda í andrúmsloftinu og ná fram loftslagshlutleysi,“ stóð í bréfi páfans. 

Ekki kom fram í bréfinu hvenær til stæði að koma virkjuninni á laggirnar, en að verið myndi duga til að mæta orkukröfum Vatíkansins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert