„Þarf tíma til að jafna sig“

Stella Assange ræðir við fréttamenn á flugvellinum í Canberra í …
Stella Assange ræðir við fréttamenn á flugvellinum í Canberra í dag. AFP

Julian Assange þarf næði og tíma til að jafna sig eftir meira en fimm ár í háöryggisfangelsi í London.

Þetta sagði Stella eiginkona hans eftir heimkomu Assange til Canberra í Ástralíu í morgun.

„Þið verðið að skilja að hann þarf tíma til að jafna sig,“ sagði tárvot Stella Assange við fréttamenn eftir að hafa endurheimt eiginmann sinn.

Assange kom til Canberra á tíunda tímanum í morgun eftir flug frá Norður-María­n­eyj­um en eins og fram hef­ur komið lýsti Assange sig sek­an af ákæru um sam­særi sem snýr að birt­ingu trúnaðar­gagna og var það liður í sátt sem hann gerði við yf­ir­völd í Banda­ríkj­un­um til að kom­ast hjá framsali til Banda­ríkj­anna.

„Ég bið ykkur vinsamlega að gefa okkur fjölskyldunni tíma og næði. Hann er nýkominn til Ástralíu eftir að hafa verið í háöryggisfangelsi í meira en fimm ár og72 tíma flug. Það er ótímabært fyrir hann að tjá sig,“ sagði Stella ennfremur en Julian Assange vildi ekki ræða við fréttamenn eftir komuna til Canberra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert