Þrítugur karlmaður var skotinn til bana fyrir utan ísraelska sendiráðið í Serbíu í dag eftir að hann hafði skotið lögreglumann í hálsinn með lásboga.
Maðurinn er íslamisti að sögn lögreglu og forsætisráðherrann hefur lýst árásinni sem hryðjuverki.
Árásin átti sér stað í morgun. Árásarmaðurinn skaut lögreglumann sem var á vakt fyrir utan ísraelska sendiráðið í Belgrad, höfuðborg Serbíu. Lögreglumaðurinn náði að skjóta árásarmanninn til bana. Lögreglumaðurinn er á lífi en þungt haldinn.
Stjórnvöld segja að nokkrir aðrir menn, sem eru taldir tengjast árásinni, hafi verið handteknir í kjölfar árásarinnar.
Að sögn lögreglunnar var einnig verið að framkvæma húsleitir á fjölmörgum stöðum.
„Það eru nokkrir einstaklingar til viðbótar sem við erum að leita að, vissulega einn sem er í Serbíu,“ sagði Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, við blaðamenn eftir að hafa heimsótt særða lögreglumanninn.
Hann bætti því við að árásarmaðurinn og félagar hans hefðu verið undir eftirliti serbnesku lögreglunnar fyrir árásina, en sannanir hafi skort til að handtaka þá.
Bjó árásarmaðurinn meðal Bosníu-múslima í Novi Pazar í Serbíu.
Innanríkisráðherra Serbíu, Ivica Dacic, sagði við blaðamenn að fyrstu vísbendingar bendi til þess að árásamaðurinn og félagar hans tengist róttækum hópi íslamista, Wahhabi.
Wahhabi íslamistar eru til dæmis ráðandi í Sádi-Arabíu og fylgja íhaldssömustu og ströngustu reglum íslam.