Biden hvergi banginn

Jill Biden stendur þétt við bakið á eiginmanni sínum.
Jill Biden stendur þétt við bakið á eiginmanni sínum. AFP/Mandel Ngan

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tók þátt í þremur fundum á laugardaginn þar sem hann freistaði þess að sannfæra fjárfesta um að hann gæti enn unnið endurkjör í forsetakosningunum í nóvember, þrátt fyrir frammistöðu sína í kappræðum á fimmtudag sem olli skelfingu meðal margra demókrata. 

Með Biden í för var forsetafrúin Jill Biden sem hefur staðið þétt við bakið á eiginmanni sínum á sama tíma og kallað er eftir því að Biden stígi til hliðar sem frambjóðandi demókrata.

„Joe er ekki bara rétti maðurinn í starfið - hann er eina manneskjan í starfið,“ sagði hún til að mynda á einum fundi um helgina. 

Enginn háttsettur stutt við ákallið 

Margir hafa lýst efasemdum sínum um hæfi forsetans í kjölfar kappræðna sem fóru fram á fimmtudagskvöldið gegn Donald Trump, forsetaframbjóðenda repúblikana, þar sem Biden fann ekki orðin sín og gleymdi hvað hann ætlaði að segja.

Vegna þessa hvöttu margir Biden til að segja af sér, þar á meðal ritstjórn The New York Times. Á sama tíma hvatti ritstjórn Washington Post hann til að fara í sálarleit um helgina eftir að „hörmuleg“ frammistaða hans vakti réttmætar spurningar um getu hans til að gegna erfiðasta starfi í heimi í fjögur ár í viðbót. 

Þrátt fyrir að demókratar hafi velt því alvarlega fyrir sér að skipta Biden út þá hefur enginn háttsettur demókrati stutt við ákallið. Barack Obama og Bill Clinton, fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna, ítrekuðu til að mynda báðir stuðning sinn við Biden á föstudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert