Tveir létust í miklum stormi í Svartfjallalandi í dag. AFP-fréttastofan greinir frá.
„Verkamaður í strandbænum Canj lést þegar byggingarkrani hrundi í storminum,“ segir lögreglan í Svartfjallalandi. Starfsmaðurinn mun hafa verið í krananum þegar hann hrundi.
Einn til viðbótar lést þegar eldingu laust niður í golfvöll, en dánarorsök hefur enn ekki verið staðfest með krufningu, að sögn lögreglu.
Áður en stormurinn náði til Svartfjallalands hafði hann komið við í Slóveníu, Króatíu og Serbíu, og valdið þar einhverjum skaða.