Fá að hafa opið allan sólarhringinn

Ólympíuleikarnir verða settir í París 26. júlí. Skál fyrir því!
Ólympíuleikarnir verða settir í París 26. júlí. Skál fyrir því! AFP

Barir og kaffihús í frönsku höfuðborginni París verður leyft að hafa opið allan sólarhringinn fyrir opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna.

Frá þessu greindu yfirvöld í París í dag en Ólympíuleikarnir verða settir með bátsskrúðgöngu á ánni Signu þann 26. júlí og þeim lýkur með sama hætti þann 11. ágúst.

Sama undantekning frá leyfisreglum verður gerð fyrir opnun Ólympíumóts fatlaðra 28. ágúst og lokahátíðina 8. september.

Í París eru um 15 þúsund barir sem margir hverjir loka í ágústmánuði vegna sumarfría undir venjulegum kringumstæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert