Trump tvöfaldar forskot sitt á Biden

Donald Trump mælist með 49% fylgi á sama tíma og …
Donald Trump mælist með 49% fylgi á sama tíma og Biden mælist með 43%, samkvæmt nýrri könnun. AFP/Jim Watson

Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, tvöfaldar forskot sitt á Joe Biden Bandaríkjaforseta í nýrri skoðanakönnun Times/Siena. 74% kjósenda telja Biden vera of gamlan fyrir starfið.

Dagblaðið New York Times greinir frá.

Joe Biden mælist með 43% fylgi meðal líklegra kjósenda á sama tíma og Donald Trump mælist með 49%.

Fyrir kappræðurnar þá munaði þremur prósentustigum á milli þeirra í könnun Times/Siena en núna munar sex prósentustigum. Því hefur Trump tvöfaldað forskot sitt á Biden frá síðustu könnun.

Donald Trump og Joe Biden tókust á í sjónvarpskappræðum á …
Donald Trump og Joe Biden tókust á í sjónvarpskappræðum á CNN í síðustu viku. AFP

74% segja Biden og gamlan

Frá árinu 2015 þá hefur Trump aldrei mælst með jafn mikið forskot í könnunum Times/Siena.

Forskot Trumps eykst enn meira ef litið er á skráða kjósendur. Þar mælist hann áfram með 49% en Biden mælist aðeins með 41%.

Alls telja 74% kjósenda Biden of gamlan til að gegna starfinu og hefur hlutfallið hækkað um fimm prósentustig frá því að kappræðurnar fóru fram í síðustu viku.

48% demókrata vilja halda Biden í framboði

Áhyggjur af aldri Bidens hafa aukist um átta prósentustig meðal demókrata frá því fyrir kappræður, en 59% demókrata hafa nú áhyggjur af aldrinum.

79% af óflokksbundnum kjósendum hafa áhyggjur af aldri Bidens.

Eftir kappræðurnar vilja aðeins 48% af demókrötum halda honum sem forsetaefni flokksins í komandi kosningum. Þó var talan ekki há fyrir kappræðurnar, en þá vildu 52% af demókrötum halda honum sem forsetaefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert