Hættir sem formaður Íhaldsflokksins

Rishi Sunak hættir sem formaður Íhaldsflokksins.
Rishi Sunak hættir sem formaður Íhaldsflokksins. AFP/Henry Nicholls

Rishi Sunak, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands og formaður Íhaldsflokksins, mun láta af embætti formanns flokksins.

Þetta tilkynnti hann á blaðamannafundi rétt í þessu.

Íhaldsflokkurinn hlaut sögulega slæma kosningu í þingkosningum sem voru haldnar í gær. Verkamannaflokkurinn vann stórsigur.

Sunak sagðist ætla að sitja í formannsstólnum þangað til nýr formaður yrði kosinn.

Uppfært:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert