Snörp orðaskipti: Biden ekki í Parkinson-meðferð

Karine Jean-Pierre, blaðamannafultrúi Hvíta hússins.
Karine Jean-Pierre, blaðamannafultrúi Hvíta hússins. AFP/Jim Watson

Joe Biden Bandaríkjaforseti er ekki í meðferð við Parkinson-sjúkdómnum, að sögn talskonu Hvíta hússins.

Fjölmiðlar vestanhafs greindu frá því í dag að á átta mánaða tímabili hefði sérfræðingur í lækningum við Parkinson heimsótt Hvíta húsið að minnsta kosti átta sinnum.

Um er að ræða tímabilið frá júlí í fyrra til og með febrúar í ár.

„Skiptir engu hversu pirraður þú verður út í mig“

„Hefur forsetinn verið í meðferð fyrir Parkinson? Nei. Er hann í meðferð vegna Parkinson? Nei, það er hann ekki. Er hann að taka lyf gegn Parkinson? Nei,“ sagði Karine Jean-Pierre, fjölmiðlafulltrúi forsetaembættisins, á blaðamannafundi nú í kvöld að íslenskum tíma.

Til snarpra orðaskipta kom milli blaðamanns og talskonu Bidens á blaðamannafundinum eins og sjá má í myndskeiði hér að neðan.

Sagðist hún ekki myndu staðfesta nöfn á þeim læknum sem hafa hitt Biden. Dagblaðið New York Times fullyrti að læknirinn væri dr. Kevin Cannard, sem hefur unnið með Hvíta húsinu í 12 ár samkvæmt LinkedIn-síðu sinni.

„Það skiptir ekki máli hversu mikið þú þrýstir á mig. Skiptir engu hversu pirraður þú verður út í mig. Ég er ekki að fara að staðfesta neitt nafn,“ sagði Jean-Pierre.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert