Franska ríkislestarfyrirtækið SNCF hefur staðfest að þrjár hraðlestaleiðir, Atlantique, Nord og Est, hafi orðið fyrir áhrifum meiriháttar spellvirkis á hraðlestarkerfi Frakklands.
Þá var komið í veg fyrir árás á aðra hraðlestabraut. Á kortinu hér að neðan má sjá hvaða hraðlestatengingar um ræðir.
Patrice Vergriete, samgönguráðherra Frakklands, hefur staðfest að fjöldi íkveikjutækja hafi fundist af yfirvöldum sem rannsaka meiriháttar spellvirki á hraðlestarkerfi Frakklands.
Í viðtali við frönsku útvarpsstöðina TF1 sagði Patrice Vergriete að íkveikjutæki hafi fundist en neitaði að segja hver gæti staðið á bak við spellvirkin.
Hann lýsti árásunum sem „glæpsamlegu athæfi“ og sagði að öryggissveitir væru í viðbragðsstöðu.
Kveikt var í köplum eða leiðslum sem bera öryggisupplýsingar til lestarstjóra.
Lestarfyrirtækið Eurostar hefur einnig þurft að aflýsa ferðum og seinka. Farþegar hafa verið beðnir um að halda sig fjarri lestarstöðvum þar til þeir fá tilkynningu um að lest þeirra sé örugglega að fara af stað.
Enginn hefur lýst ábyrgð á skemmdarverkunum.