Brasilíubúar standa frammi fyrir því að samfélagsmiðillinn X gæti verið lokaður eftir að Elon Musk, eigandi fyrirtækisins, hafnaði úrskurði um að útnefna nýjan lagalegan fulltrúa fyrir fyrirtækið.
Musk átt í útistöðum við Alexandre de Moraes, forseta hæstaréttar í Brasilíu, vegna þess að X neitaði að verða við dómsúrskurði um að lokað yrði á notendur miðilsins sem dreifa fölskum upplýsingum þar.
Deilurnar milli Musk og Moraes hófust þegar Moraes skipaði X að loka nokkrum síðum sem tilheyrðu stuðningsmönnum Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu, sem reyndu að varpa rýrð á úrslit forsetakosninganna 2022, sem Bolsonaro tapaði.
„Bráðlega er búist við því að dómari Alexandre de Moraes muni fyrirmæla að X verði lokað í Brasilíu – einfaldlega vegna þess að við viljum ekki hlýða ólöglegum fyrirmælum hans um að ritskoða pólitíska andstæðinga hans.“ segir í yfirlýsingu frá miðlinum sjálfum á X.
Þetta kom í kjölfar þess að 24 klukkustunda frestur til að útnefna lagalegan fulltrúa rann út án þess að X hafi fullnægt kröfum dómara.
Forritið og vefsíðan eru þó enn aðgengileg fyrir þær 22 milljónir notendur samfélagsmiðilsins sem búsettir eru í Brasilíu.
Soon, we expect Judge Alexandre de Moraes will order X to be shut down in Brazil – simply because we would not comply with his illegal orders to censor his political opponents. These enemies include a duly elected Senator and a 16-year-old girl, among others.
— Global Government Affairs (@GlobalAffairs) August 29, 2024
When we attempted…