Apple dæmt til að greiða 2.000 milljarða

Apple þarf að greiða.
Apple þarf að greiða. AFP

Evrópudómstóllinn hefur dæmt bandaríska tæknifyrirtækið Apple til að greiða írskum stjórnvöld 13 milljarða evra í ógreidda skatta, eða sem samsvarar um 2.000 milljörðum króna.

Þar með hefur endi verið bundinn á deilu sem hefur staðið yfir í átta ár. 

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sakað írsk stjórnvöld um að hafa veitt Apple ólöglegar skattaívilnanir árið 2016. Írar hafa aftur á móti ávallt haldið því fram að fyrirtækið þurfi ekki að standa skil á þessum gjöldum. 

Margrethe Vestager fagnaði sigri.
Margrethe Vestager fagnaði sigri. AFP

Fram kemur í umfjöllun BBC, að írska ríkisstjórnin muni una niðurstöðunni. 

Talsmenn Apple lýsa yfir vonbrigðum og saka framkvæmdastjórn ESB um að reyna að breyta reglum afturvirkt. 

Google beið einnig lægri hlut.
Google beið einnig lægri hlut. AFP

Google tapaði einnig dómsmáli

Þá komst Evrópudómstóllinn einnig að niðurstöðu í máli sem tengist bandaríska tæknirisanum Google. En dómstóllinn hefur dæmt fyrirtækið til að greiða 2,4 milljarða evra sekt fyrir brot fyrir markaðsmisnotkun. Það jafngildir um 365 milljörðum kr. 

Margrethe Vestager, yfirmaður samkeppnismála hjá ESB, fagnaði dómsniðurstöðunum. „Þetta er stór sigur fyrir evrópska ríkisborgara og réttlæti í skattamálum,“ sagði hún. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert