Höfnuðu samningnum og samþykktu verkfall

Yfirgnæfandi meirihluti greiddi atkvæði með verkfalli.
Yfirgnæfandi meirihluti greiddi atkvæði með verkfalli. AFP/Patrick T. Fallon

Þúsundir starfsmanna flugvélaframleiðandans Boeing í Bandaríkjunum samþykktu í gær að hefja verkfallsaðgerðir og hafna samningi sem kvað á um 25 prósenta launahækkun yfir fjögurra ára tímabil.

Greiddu 94,6% starfsmanna Boeing í Seattle atkvæði á móti samningnum auk þess sem 96% starfsmanna greiddu atkvæði með verkfallsaðgerðum.

Krafa hef­ur verið uppi um launa­hækk­an­ir upp á 40% en leiðtog­ar verka­lýðsfé­laga sem eru í for­svari fyr­ir um 30 þúsund starfs­menn hafa hvatt fólk til að taka samn­ingn­um, þar sem hann sé sá besti sem náðst hef­ur í samn­ingaviðræðum.

Skýr afstaða

„Félagar okkar tóku skýra afstöðu í kvöld,“ sagði Jon Holden, forseti Alþjóðasamtaka vélvirkja og flugvirkja í umdæmi 751, í gær.

„Við leggjum niður störf á miðnætti.“

Verkfallið hefur áhrif á tvær stórar verksmiðjur en 33 þúsund starfsmenn munu leggja niður störf.

Talsmenn Boeing sögðu fyrirtækið reiðubúið að halda áfram samningaviðræðum þrátt fyrir þessa niðurstöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert