Hernaðaraðstoð N-Kóreu veldur mestum skaða

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, (til vinstri) og Vladimír Pútín Rússlandsforseti …
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, (til vinstri) og Vladimír Pútín Rússlandsforseti í júní síðastliðnum. AFP/Vladimir Smirnov

Hernaðaraðstoðin sem Norður-Kórea veitir Rússlandi, þar á meðal mikið magn skotfæra, er sú skaðlegasta af öllum fyrir Úkraínu.

Kyrylo Budanov, yfirmaður leyniþjónustu úkraínska hersins, greindi frá þessu.

„Stærsta vandamálið okkar í tengslum við alla samherja Rússlands er Norður-Kórea vegna þess að magnið af hergögnum sem þeir útvega, þeir hafa svo sannarlega áhrif á ákafa bardaganna…þeir eru að útvega mikið magn skotfæra, sem skiptir afar miklu máli,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert