Sextán fórust þegar flutningabíll sprakk

Garry Conille (til vinstri) ásamt Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrr …
Garry Conille (til vinstri) ásamt Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrr í þessum mánuði. AFP/Roberto Schmidt

Sextán manns fórust og um 40 til viðbótar slösuðust þegar eldsneytisflutningabíll sprakk í suðvesturhluta Haítí.

Að sögn vitna varð sprengingin þegar fórnarlömbin voru að reyna að ná sér í eldsneyti sem lak úr bílnum.

Þeir sem slösuðust voru fluttir á sjúkrahús heilagrar Teresu í hafnarborginni Miragoane, um 100 kílómetrum vestur af höfuðborginni Port-au-Prince.

Garry Conille, bráðabirgðaforsætisráðherra Haíti, boðaði til neyðarfundar hjá ríkisstjórninni til að takast á við harmleikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert