„Við erum að komast að raun um stærð hamfaranna“

Við Wien-ána þar sem hún liggur um Hietzing-hverfið í Vín.
Við Wien-ána þar sem hún liggur um Hietzing-hverfið í Vín. AFP

Fleiri en tuttugu manns hafa látið lífið í flóðunum sem óveðrið Boris hafði í för með sér fyrir Mið-Evrópu.

Óvenju mikil úrkoma og hvassviðri hefur dunið á stórum hlutum Austurríkis, Tékklands, Ungverjalands, Póllands, Rúmeníu og Slóvakíu frá því á föstudag. 

Lögregla fann í dag lík 81 árs gamla konu í Neðra-Austurríki þar sem flætt hafði inn í heimili hennar. Neðra-Austurríki er það sambandsríki sem verst hefur orðið úti í landinu.

Þar hafa fimm látist af þeim 21 sem fundist hafa látnir í ríkjunum.

Veðrinu hefur nú slotað að nokkru leyti en jörðin er víða gegnsósa og ár flæða enn yfir bakka sína. Yfirvöld biðja því íbúa að vera áfram á varðbergi.

Dónárskurðurinn í Vínarborg flæddi yfir bakka sína við miðborgina í …
Dónárskurðurinn í Vínarborg flæddi yfir bakka sína við miðborgina í flóðunum. AFP

60 þúsund heimili án rafmagns í Tékklandi

„Við erum að komast að raun um stærð hamfaranna,“ sagði ríkisstjóri Neðra-Austurríkis, Johanna Mikl-Leitner, á blaðamannafundi í dag.

Enn eru 60 þúsund heimili í Tékklandi án rafmagns, aðallega í norðausturhluta landsins. Þá voru 500 manns fluttir á brott af heimilum sínum í gærkvöldi, börn þar á meðal.

Sérfræðingar hafa ítrekað sagt loftslagsbreytingar af völdum manna hafa aukið tíðni og umfang veðurfyrirbrigða á borð við ofsaregn og flóð.

Andreas von Weissenberg, aðgerðastjóri Rauða krossins í Mið-Evrópu, segir að von sé á rannsóknum til að ákvarða hvort loftslagsbreytingar tengist þessum veðurofsa á komandi mánuðum.

Barir og veitingastaðir við bakka Dónár í Vínarborg.
Barir og veitingastaðir við bakka Dónár í Vínarborg. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert