„Máttvana atlögu hrundið“

Miller gaf ekki upp hverjar afleiðingarnar yrðu eftir árás Írans …
Miller gaf ekki upp hverjar afleiðingarnar yrðu eftir árás Írans á Ísrael. AFP/Kevin Dietsch

Loftárás Írans á Ísrael var máttvana og henni hrundið að sögn Jake Sullivan, þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjaforseta. Sullivan segir að Íran megi búast við alvarlegum afleiðingum í kjölfar árásarinnar.

Íran hóf loft­árás á Ísra­el síðdeg­is í dag og lét sprengj­um rigna yfir borg­irn­ar Tel Avív og Jerúsalem. Íran axl­ar ábyrgð á árás­inni og seg­ir ír­anski bylt­ing­ar­vörður­inn árásina gerða til að hefna fyr­ir dauða leiðtoga His­bollah-sam­tak­anna, Hass­ans Nasrallahs.

Masoud Pezeshkian forseti Írans.
Masoud Pezeshkian forseti Írans. AFP/Ludovic Marin

BNA og Ísrael stilla saman strengi

Hann sagði árásina alvarlega stigmögnun á spennunni í Mið-Austurlöndum.

Sullivan segir Bandaríkjaher hafa aðstoðað við loftvarnir með því að skjóta á eldflaugar úr tundurspilli hersins við Ísrael.

Matthew Miller, talsmaður utanríkisþjónustu Bandaríkjanna, ítrekaði orð Sullivans og sagði Íran mega búast við alvarlegum afleiðingum í kjölfar árásarinnar.

Hann sagði enn fremur að Bandaríkin og Ísrael myndu stilla saman strengi þegar kæmi að afleiðingunum. Hann gaf þá ekki upp hverjar afleiðingarnar yrðu.

Masoud Pezeshkian forseti Írans fagnaði árásinni og sagði hana afdráttarlaust mótsvar við yfirgangi Ísraels.

Hann sagði árásina vera í samræmi við lög og aðgerðir til að koma á friði á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert