Ríkisfjölmiðill Sýrlands segir að þrír almennir borgarar hafi verið drepnir í loftárásum Ísraels á Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í nótt. Níu til viðbótar særðust.
Fram kom í frétt SANA-fréttastofunnar að loftárásir hefðu verið gerðar á Gólanhæðir, sem eru við landamæri Sýrlands og Ísraels.
Skotmörkin voru þó nokkur svæði í Damaskus.