Olíuverð hækkaði eftir ummæli Bidens

Biden ræddi við blaðamenn áður en hann fór um borð …
Biden ræddi við blaðamenn áður en hann fór um borð í Marine One-þyrluna. AFP/Saul Loeb

Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst hafa rætt við Ísraela um mögulega hefndarárás á olíuinnviði Írans. Verð á olíu hef­ur hækkað á alþjóðamörkuðum í kjölfar ummælanna.

Biden ræddi við blaðamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag og þegar hann var spurður hvort hann styddi að Ísraelar gerðu árás á olíuinnviði Írana sagði hann:

„Við erum að ræða það.”

Olíuverð hækkaði um fimm prósent í kjölfar ummælanna.

Gæti haft neikvæð áhrif á framboð Harris

Íran skaut um 200 eld­flaug­um í átt að Ísra­el á þriðjudag til þess að hefna fyrir drápið á Hassan Nasrallah, leiðtoga líbönsku Hisbollah-hryðjuverkasamtakanna.

Hækkun olíuverðs gæti haft neikvæð áhrif á Kamölu Harris, forsetaframbjóðanda demókrata og varaforseta Bidens, í komandi forsetakosningum 5. nóvember.

Staða efnahagsmála, þá sérstaklega verðbólgan, er það mál sem er kjósendum efst í huga í komandi kosningum.

Býst ekki við árásum í dag

Biden kvaðst þó ekki búast við neinum aðgerðum frá Ísrael í dag. Spurður af blaðamanni hvort að hann myndi „leyfa“ Ísraelum að ráðast í árásir sagði hann:

„Í fyrsta lagi, við „leyfum ekki“ Ísrael, við ráðleggjum Ísrael. Og það er ekkert að gerast í dag,“ svaraði Biden.

Biden sagði í gær að hann væri ekki fylgj­andi hugs­an­leg­um loft­árás­um Ísra­els­manna á skotmörk þar sem Íranir stunda kjarn­orku­rann­sókn­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert