Skógarbjörn varð manni að bana

Skógarbjörn. Mynd úr safni.
Skógarbjörn. Mynd úr safni. AFP

55 ára karlmaður lést eftir að skógarbjörn réðst á hann í skógarsvæði í norðurhluta Slóvakíu í nótt.

Frá þessu greindi talsmaður lögreglunnar í samtali við slóvakíska fjölmiðilinn SME í gær.

Maðurinn hafði ásamt öðrum farið út í skógarsvæði nálægt þorpinu Hybe til að tína sveppi þegar skógbarbjörninn réðst á manninn. Hann hlaut lífshættulega áverka en björgunarþyrla með sjúkraflutningamenn innanborðs var kölluð til.

Maðurinn lést á vettvangi af völdum hjartastopps en slagæð í neðri hluta líkama mannsins fór í sundur eftir árás bjarnarins.

Talið er að 1.300 skógarbirnir séu í Slóvakíu og í gögnum frá slóvakíska umhverfisráðuneytinu var tilkynnt um 20 árásir skógarbjarna á menn á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert