Þrír létust í umferðarslysi í Svíþjóð

Sænska lögreglan.
Sænska lögreglan. mbl.is/Gunnlaugur

Þrír létust í hörðum árekstri á þjóðveginum milli Ludvik og Smedjebacken í Svíþjóð í gærkvöld.

Aftonbladet greinir frá þessu en lögreglu barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan 22 í gærkvöld. Karlmaður á þrítugsaldri var á ferð í öðrum bílnum og tvær konur á þrítugsaldri í hinum bílnum. Létust þau öll á slysstað.

„Svo virðist sem tveir bílar hafi rekist saman og það hafi gerst við framúrakstur. Einn bílanna var á röngum vegarhelmingi,“ segir Olle Lund, varðstjóri hjá lögreglunni í Bergslagen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert