Skutu á olíubirgðastöð á Krímskaga

Úkraínskur skriðdreki á ferðinni í ágúst síðastliðnum.
Úkraínskur skriðdreki á ferðinni í ágúst síðastliðnum. AFP/Roman Pilipey

Úkraínumenn segja hersveitir sínar hafa hæft olíubirgðastöð á Krímskaga í nótt. Árásin er sú nýjasta af hálfu Úkraínumanna á orkuinnviði sem eru undir stjórn Rússa.

Tilgangurinn með árásunum er að gera Rússum skráveifu þegar kemur að tekjuöflun þeirra vegna stríðsins gegn Úkraínu.

Árásin í nótt var gerð á Feodosa á Krímskaga, sem Rússar innlimuðu árið 2014.

Yfirvöld í Rússlandi segja að eldur hafi brotist út á olíubirgðastöð í hafnarbænum við Svartahaf þar sem um 70 þúsund manns búa. Enginn féll í árásinni.

Úkraínumenn segja árásirnar á rússnesku orkuinnviðina sanngjarna hefnd vegna árása Rússa á úkraínska orkuinnviði sem hafa orðið til þess að rafmagn hefur farið af á heimilum milljóna manna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert