Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hvatti íbúa Líbanon að leysa land sitt úr ánauð Hisbollah-samtakanna ella sé hætt við að átökin fari á sama veg og á Gasa.
„Þið hafið tækifæri til þess að bjarga Líbanon áður en það fellur í hyldýpi styrjaldar, eyðileggingar og þjáningar, sem henni fylgir, eins og við sjáum á Gasa,“ sagði hann og enn fremur:
„Ég hvet ykkur, íbúa Líbanon: Frelsið land ykkar úr ánauð Hisbollah svo stríðið taki enda.“
Fyrr í dag kölluðu mannréttindafulltrúar Sameinuðu þjóðanna eftir tafarlausum aðgerðum til að stöðva stigmagnandi styrjöld í Líbanon áður en hún fer að líkjast eyðileggingunni á Gasa.
Netanjahú sagði Ísraelsher hafa fellt þúsundir hryðjuverkamanna í loftárásum á suðurhluta Líbanon.
Þá sagði hann að búið væri að fella fyrrverandi leiðtoga Hisbollah, Hassan Nasrallah, eftirmann hans og eftirmann eftirmanns hans.
Á laugardaginn greindi háttsettur heimildarmaður innan Hisbollah-samtakanna frá því að búið væri að fella sennilegan arftaka Nasrallah, Hashem Safieddine.
Ísraelsher heldur úti nær stöðugum loftárásum á úthverfi í suðurhluta höfuðborgar Líbanon, Beirút.
Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísraels, sagði fyrr í dag að búið væri að brjóta niður samtökin og að þau hefðu orðið illa úti.