Biðlar til Sameinuðu þjóðanna

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. AFP/Ohad Zwigenberg

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur kallað eftir því að friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í suðurhluta Líbanon verði fjarlægðir undir eins.

Fimm friðargæsluliðar hafa særst í árásum Ísraels á síðustu dögum sem hefur leitt til mikillar gagnrýni frá þjóðarleiðtogum.

Hefur Emmanuel Macron Frakklandsforseti  til að mynda sagt að friðargæsluliðarnir hafi verið skotmarkið og að árásir á þá hafi ekki verið tilviljunarkenndar.

Netanjahú biðlaði í dag til framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna að koma friðargæsluliðum sínum af svæðinu og það strax.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert