94 létust í sprengingu

Minnst 94 fórust og 50 særðust. Mynd úr safni.
Minnst 94 fórust og 50 særðust. Mynd úr safni. AFP/Olympia de Maismont

Minnst 94 fórust og 50 slösuðust þegar mikil sprenging varð skömmu eftir að olíubíll lenti í árekstri í norðurhluta Nígeríu í gær.

Mörg fórnarlambanna höfðu safnast í kringum bílinn til að sækja sér eldsneyti sem hafði lekið á veginn eftir áreksturinn. 

„Við höfum staðfest að 94 séu látnir og um 50 særðir,“ sagði Lawani Shiisu Adam, talsmaður lögreglunnar, við AFP-fréttaveituna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert