Gerðu loftárásir á fjármálastofnanir

Hermenn virða fyrir sér eyðileggingu eftir loftárás Ísraela á fjármálastöð …
Hermenn virða fyrir sér eyðileggingu eftir loftárás Ísraela á fjármálastöð Al-Qard Al-Hassan í borginni Baalbek í Bekaa-dal í morgun. AFP/Nidal Solh

Ísraelar hófu í gærkvöldi að loftárásir á fjármálastöðvar Al-Qard Al-Hassan í Líbanon sem segja að fjármagni Hisbollah-samtökin.

Ríkisfjölmiðill Líbanons greindi frá því í gærkvöldi að 11 loftárásir hefðu verið gerðar á úthverfi í suðurhluta Beirút, höfuðborgar Líbanons, og var mörgum þeirra beint að Al-Qard Al-Hassan. Öðrum árásum var beint að starfsemi þeirra í Bekaa-dal í austurhluta Líbanons og í suðurhluta landsins.

AFP

Einnig kom fram að árás hefði verið gerð skammt frá alþjóðaflugvellinum í Beirút. Flest hjálpargögn sem berast til Líbanons fara í gegnum flugvöllinn, auk þess sem margir hafa flúið landið þaðan.

Skömmu síðar sögðust Hisbollah-samtökin hafa skotið niður 450 árásardróna Ísraela, án þess að tilgreina hvar þeir voru skotnir niður. Samtökin, sem njóta stuðnings Írans, sögðust einnig hafa skotið þó nokkrum sprengikúlum yfir landamærin á ísraelska hermenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert