Geimfari frá bandarísku geimferðastofnuninni NASA, sem kom heim frá alþjóðlegu geimstöðinni fyrr í dag, hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna óskilgreindra veikinda.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá NASA, en þar segir einnig að líðan viðkomandi sé stöðug.
Fjórir geimfarar voru í leiðangrinum og lenti geimfarið, sem nefnt hefur verið Drekinn (e. the Dragon), í sjónum undan ströndum Flórída fyrr í dag. Geimfararnir höfðu verið um borð í geimstöðinni á braut um jörðu í tæpa átta mánuði.
Geimfarið lenti eðlilega og geimförunum var bjargað án vandkvæða, að því er segir í tilkynningu NASA.
En við hefðbundið læknismat á áhöfninni var óskað eftir viðbótarmati á áhöfninni til að gæta allrar varkárni. Allir geimfarar voru því fluttir á sjúkrahús til nánari skoðunar.
Í kjölfarið var þremur frjálst að fara en einum haldið inn á sjúkrahúsi „í eftirliti í varúðarskyni“.
NASA sagðist ekki ætla að gefa upp sérstakar læknisfræðilegar upplýsingar til að vernda einkalíf geimfarans en myndi veita nánari upplýsingar eftir þörfum.