Grunur um hryðjuverk

Atvikið átti sér stað í morgun.
Atvikið átti sér stað í morgun. AFP

Einn er látinn og að minnsta kosti 30 særðir eftir að vörubíl var ekið inn í mannfjölda sem samankominn var á strætóstoppistöð í Tel Avív í morgun.

Grunur er um að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 

Breska ríkisútvarpið greinir frá.

Greint hefur verið frá að ökumaður vörubílsins héti Rami Natur og væri arabískur Ísraelsmaður en hann var skotinn til bana af óbreyttum borgara á vettvangi atviksins.

Voru margir hinna særðu ellilífeyrisþegar sem voru í dagsferð og ætluðu sér að heimsækja safn í borginni.

Átta af þeim særðu voru fastir undir bílnum er hann stoppaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert