Vörubíl ekið á strætóstoppistöð

Atvikið átti sér stað í morgun.
Atvikið átti sér stað í morgun. AFP

Að minnsta kosti 24 manns særðust þegar vörubíll ók á strætóstoppistöð í borginni Tel Avív í Ísrael í morgun. Hefur ökumaður vörubílsins verið skotinn.

Þá hefur lögregla staðfest að margir séu slasaðir en hefur ekki greint frá hvort um hafi verið að ræða slys eða skipulagða árás.

Að minnsta kosti 16 manns voru fluttir á sjúkrahús vegna meiðsla sinna. 

Í tilkynningu frá heilbrigðisþjónustu í landinu kemur fram að atvikið hafi átt sér stað rétt eftir klukkan 10 að staðartíma í morgun og að sjúkraliðar séu nú á staðnum að hlúa að tugum manna sem séu slasaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert