Nú eru aðeins fimm dagar þar til Bandaríkjamenn ákveða það hver fær að búa í Hvíta húsinu næstu fjögur árin. Samkvæmt mælingum þá stefnir í æsispennandi kosninganótt.
Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins og mbl.is, er staddur í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington, þar sem hann mun færa lesendum heima á klakanum fréttir.
Hann mun einnig fara til Pennsylvaníu sem er eitt allra mikilvægasta sveifluríkið með sína 19 kjörmenn.
Samkvæmt RealClearPolitics þá er Kamala Harris, forsetaframbjóðandi demókrata, nú komin með forskot á Donald Trump, forsetaframbjóðanda repúblikana, í Michigan og Wisconsin.
Í Michigan mælist hún með 0,4 prósentustiga forskot á Trump og í Wisconsin mælist hún með 0,2 prósentustiga forskot. Undanfarnar vikur hefur Trump mælst með forskot í öllum sveifluríkjum.
Trump mælist hins vegar með forskot á Harris í hinum fimm sveifluríkjunum. Hann er kominn með ágætis forskot á Harris í Georgíu og Arizona þar sem hann mælist með á bilinu 2,4-2,7 prósentustiga forskot.
Í Norður-Karólínu mælist hann með eins prósentustiga forskot og í Nevada mælist hann með 0,5 prósentustiga forskot.
Pennsylvanía gæti orðið það ríki sem ræður úrslitum um það hver verður næsti forseti Bandaríkjanna og Trump er með 0,7 prósentustiga forskot í því ríki.
Fylgismunur er því áfram innan skekkjumarka og baráttan æsispennandi.