Repúblikanar hafa fengið 51 þingmann kjörinn í öldungadeildina af hundrað og fá þar með meirihluta.
Demókratar hafa misst tvö þingsæti til repúblikana í öldungadeildinni og eru völdin því komin í hendur síðarnefnda flokksins.
Fyrst í Vestur-Virginíu þar sem Jim Justice hafði betur gegn demókratanum Glenn Elliott.
Síðar í Ohio þar sem Bernie Moreno lagði demókratann og öldungadeildarþingmann til margra ára, Sherrod Brown.