Nokkur ríki Bandaríkjanna framlengdu rétt til þungunarrofs

Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna ásamt eiginkonu sinni, Melaniu Trump.
Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna ásamt eiginkonu sinni, Melaniu Trump. AFP

Kjósendur í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna framlengdu eða festu í lög réttinn til þungunarrofs en atkvæðagreiðslur þess efnis fóru samhliða forsetakosningunum í Bandaríkjunum.

Í Arizona, Colorado og Maryland greiddu kjósendur atkvæði sitt með stuðningi við rétt til þungunarrofs en í Flórída var það fellt. Enn á eftir að birta niðurstöður nokkurra annarra ríkja. 

Árið 2022 komst hæstiréttur Bandaríkjanna að þeirri niður­stöðu að stjórnarskráin tryggði ekki rétt til þungunarrofs. Þar af leiðandi var það ríkjanna að ákveða hvernig lög­gjöf í málaflokknum ætti að verða.

Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, sagði í kosningabaráttunni að hann myndi ekki banna þungunarrof á landsvísu heldur leyfa hverju og einu ríki að ákveða löggjöfina eins og það er nú þegar. Kamala Harris talaði fyrir því að að lögfesta ætti aðgengi að þungunarrofi á landsvísu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert