Rochester hafði betur gegn Hansen

Lisa Blunt Rochester ásamt Joe Biden Bandaríkjaforseta.
Lisa Blunt Rochester ásamt Joe Biden Bandaríkjaforseta. AFP/Andre Cabellero-Reynolds

Demókratinn Lisa Blunt Rochester verður fyrsta svarta konan í Delaware til að hljóta kjör í öldungadeild Bandaríkjanna samkvæmt útgönguspám.

Hún og repúblikaninn Eric Hansen öttu kappi um sæti öldungadeildarþingmannsins og demókratans Tom Carper en hann sóttist ekki eftir endurkjöri.

Þá hefur demókratinn Matt Meyer verið kjörinn ríkisstjóri Delaware, samkvæmt útgönguspám. Repúblikaninn Mike Ramone sóttist einnig eftir embættinu. Ríkisstjórinn John Carney stígur til hliðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert