Sanders endurkjörinn og Justice tekur sæti demókrata

Bernie Sanders tryggir sér fjórða kjörtímabilið í öldungadeildinni.
Bernie Sanders tryggir sér fjórða kjörtímabilið í öldungadeildinni. AFP/Scott Eisen

Demókratinn Bernie Sanders heldur sæti sínu sem annar öldungadeildarþingmaður Vermont-ríkis. Hann hafði betur gegn repúblikanum Gerald Malloy. 

AP-fréttastofan greinir frá. 

Sanders, sem er 83 ára gamall, hefur þegar setið þrjú kjörtímabil sem öldungardeildarþingmaður og tryggir sér nú sex ár í sætinu til viðbótar.

Þá hafði repúblikaninn Jim Justice betur gegn demókratanum Glenn Elliott í baráttunni um öldungadeildarþingsæti fyrir Vestur-Virginíu. Tekur hann sæti demókratans Joe Manchin sem er að setjast í helgan stein. 

Justice hefur gegnt embætti ríkisstjóra Vestur-Virginíu frá árinu 2017. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert