Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlandshafsbandalagsins (NATO), óskar Donald Trump með sigurinn í forsetakosningunum í Bandaríkjunum og segir að endurkoma hans muni hjálpa til að halda Atlandshafsbandalaginu sterku.
„Forysta hans verður aftur lykillinn að því að halda bandalaginu okkar sterku. Ég hlakka til að vinna með honum aftur til að efla frið með styrk í gegnum NATO,“ segir Rutte í yfirlýsingu sem hann birtir á samfélagsmiðlinum X.
I just congratulated @realDonaldTrump on his election as President of the United States. His leadership will again be key to keeping our Alliance strong. I look forward to working with him again to advance peace through strength through #NATO.
— Mark Rutte (@SecGenNATO) November 6, 2024