Rússar gerðu enn eina umfangsmikla drónaárásina á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í nótt.
Tveir slösuðust, byggingar skemmdust og eldur kviknaði í þó nokkrum hverfum, að því er úkraínsk yfirvöld greindu frá.
Rússar hafa ítrekað gert árás á Kænugarð með drónum og flugskeytum síðan þeir hófu innrás sína í Úkraínu fyrir næstum þremur árum síðan, eða 24. febrúar 2022.
Drónaárásir voru gerðar á borgina í sex daga, fyrstu vikuna í nóvember, og í 20 daga í október, að sögn embættismanna.
„Árásin var gerð í bylgjum, úr mismunandi áttum, með drónum sem komust inn í borgina úr mismunandi hæð – bæði lítilli og mikilli,“ sögðu borgaryfirvöld.
Fram kom að 36 drónar hefðu verði skotnir niður yfir höfuðborginni og nærliggjandi svæðum og að brak hefði fallið niður á sex hverfi í Kænugarði með þeim afleiðingum að tveir slösuðust.