Þungt hugsi yfir ofbeldinu

Stuðningsmaður veifar palestínskum fána fyrir leikinn í gærkvöldi.
Stuðningsmaður veifar palestínskum fána fyrir leikinn í gærkvöldi. AFP/Jeroen Jumelet

Sameinuðu þjóðirnar segjast vera þungt hugsi yfir ofbeldisverkum í Amsterdam í kringum fótboltaleik Ajax og ísraelska liðsins Maccabi Tel-Aviv.

Forsætisráðherrar Ísraels og Hollands segja að ráðist hafi verið á stuðningsmenn Maccabi vegna gyðingaandúðar.

„Við höfum séð þessar fregnir sem valda okkur miklum áhyggjum,“ sagði Jeremy Laurence, talsmaður mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna.

Stuðningsmenn Maccabi Tel Aviv fyrir leikinn.
Stuðningsmenn Maccabi Tel Aviv fyrir leikinn. AFP/Jeroen Jumelet

„Enginn, enginn á að vera beittur misrétti eða ofbeldi vegna þjóðernis síns, trúarbragða, kynþáttar eða einhvers annars. Við höfum heyrt að yfirvöld ætli að hefja rannsókn á þessu atviki,“ bætti hann við. 

Vernduðu ísraelska stuðningsmenn 

Embættismenn í Amsterdam höfðu þetta að segja um það sem gerðist:

„Á þó nokkrum stöðum í borginni var ráðist á stuðningsmenn, þeir beittir ofbeldi og skotið á þá með flugeldum. Óeirðalögreglan varð að grípa inn í þó nokkrum sinnum, vernda stuðningsmenn Ísraela og fylgja þeim á hótel.“

Þegar stuðningsmenn beggja liða söfnuðust saman fyrir leikinn í gærkvöldi sagðist lögreglan vera á varðbergi og fylgjast með atvikum, þar á meðal þegar palestínskir fánar voru rifnir niður af byggingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert