Sautján slösuðust í árekstri í Manchester

Sautján voru fluttir á spítala. Myndin er úr safni.
Sautján voru fluttir á spítala. Myndin er úr safni. AFP/Michal Wachucik

Sautján manns voru fluttir á spítala í borginni Manchester í Englandi í morgun eftir að tveir tveggja hæða strætisvagnar lentu í árekstri.

Sky News greinir frá. 

Slysið varð klukkan 8.34 á staðartíma í dag. Það átti sér stað rétt fyrir utan miðbæ Manchester.

Enginn slasaðist alvarlega, en níu sjúkrabílar voru sendir á vettvang. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert