Sæstrengur á milli Finnlands og Þýskalands hefur rofnað. Talið er að skorið hafi verið á hann vísvitandi. Utanríkisráðherrar landanna tveggja segjast hafa þungar áhyggjur í sameiginlegri yfirlýsingu.
Sæstrengurinn, sem nefnist C-Lion1 og flytur fjarskiptaboð, er um 1.200 kílómetra langur og er eina beina tenging Finnlands við Mið-Evrópu.
Þá liggur hann meðfram öðrum innviðum á sjávarbotni svo sem gas- og raforkuleiðslum.
Í yfirlýsingu frá finnska fyrirtækinu Cinia, sem hefur umsjón með strengnum, segir að verið sé að rannsaka málið.
Haft er eftir talsmanni Cinia í finnskum miðlum að allar tengingar í strengnum séu í sundur.
„Á þessari stundu er ekki mögulegt að meta ástæðu rofsins, en rof sem þetta verður ekki á þessu svæði án utanaðkomandi áreksturs,“ segir talsmaðurinn.
Rof strengsins á sér stað aðeins nokkrum vikum eftir að Bandaríkin vöruðu við aukinni starfsemi rússneska hersins í kringum mikilvæga sæstrengi.
Greint var frá því í dag að sænsk stjórnvöld væru tekin að senda fimm milljón bæklinga til landsmanna þar sem þeir eru hvattir til að búa sig undir möguleg stríðsátök. Þá hafa Finnar opnað sérstaka vefsíðu þar sem farið er yfir mikilvæg atriði, komi til átaka.