Skotinn til bana eftir skothríð við sendiráð Ísrael

Fyrir utan ísraelska sendiráðið í Amman.
Fyrir utan ísraelska sendiráðið í Amman. AFP/Khalil Mazraawi

Maður var skotinn til bana eftir að hann hóf skothríð nærri sendiráði Ísraels í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í morgun. Þrír öryggisverðir særðust í árás mannsins.

Mohamed Momani, talsmaður jórdanskra stjórnvalda, lýsti atvikinu sem „hryðjuverkaárás“, og sagði árásarmanninn eiga langa sögu fíkniefnabrota. 

Málið er nú í rannsókn og eru ástæður árásarinnar óljósar. 

Árið 1994 undirrituðu Jórdanía og Ísrael friðarsamkomulag og hefur samband nágrannaríkjanna verið stöðugt. 

Mótmæli hafa þó farið fram í Rabieh–hverfinu, þar sem ísraelska sendiráðið er, eftir að stríðið á Gasa hófst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert