Segir að verið sé að svindla á Bandaríkjunum

Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, í París í Frakklandi 7. desember.
Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, í París í Frakklandi 7. desember. AFP/Sarah Meyssonnier

Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, segir gjöld á bandarísk skip sem fara í gegnum Panamaskurðinn, sem tengir saman Atlantshaf við Kyrrahaf, vera ósanngjörn og hefur hann hótað að hann muni krefjast þess að öll yfirráð yfir skurðinum verði færð yfir til Bandaríkjanna á ný.

Þá hefur hann einnig gefið í skyn að Kína hafi vaxandi áhrif á flutninga í gegnum skurðinn sem er áhyggjuefni fyrir Bandaríkin þar sem fyrirtæki landsins eru háð skurðinum fyrir vöruflutning á milli Atlantshafsins og Kyrrahafsins.

Trump tjáði sig í gær á miðli sínum Truth Social þar sem hann sagði m.a. að komið væri fram við Bandaríkin með mjög ósanngjörnum hætti þegar kæmi að vöruflutningi þeirra í gegnum skurðinn.

Svindlið muni hætta eins og skot

„Gjöldin sem Panama er að innheimta eru fáranleg,“ sagði Trump í færslu sinni og bætti við:

„Þetta algjöra svindl á landinu okkar mun hætta eins og skot.“

Panamaskurðurinn var kláraður af Bandaríkjunum árið 1914 og hafði landið öll yfirráð yfir skurðinum frá 1977 til 1999 en þá færðist allt yfirráð yfir til Panama.

Í færslu sinni í gær sagði Trump að skurðurinn hefði „einungis átt að vera undir stjórn Panama en ekki Kína eða nokkurs annars.“

„Við myndum og munum aldrei láta [skurðinn] falla í rangar hendur!,“ hélt Trump áfram.

Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti.
Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti. AFP

Skilaði mettekjum á síðasta fjárhagsári

Þá sagði hann að ef Panama gæti ekki tryggt „öruggan, skilvirkan og áreiðanlegan rekstur“ á skurðinum myndu Bandaríkin krefjast þess að stjórn yfir skurðinum yrði skilað til Bandaríkjanna „að fullu leyti og án spurninga.“

Yfirvöld í Panama hafa ekki brugðist við færslu Trumps.

Áætlað er að um 5% af sjóumferð á heimsvísu fari í gegnum Panamaskurðinn, sem gerir skipum á milli Asíu og austurstrandar Bandaríkjanna kleift að forðast hina löngu og háskalegu leið um suðurodda Suður-Ameríku.

Helstu notendur leiðarinnar eru Bandaríkin, Kína, Japan og Suður-Kórea en yfirvöld Panamaskurðsins greindu frá því í október að leiðin hefði skilað mettekjum upp á tæpa 5 milljarða dollara, eða um 692 milljarða íslenskra króna, á síðasta fjárhagsári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka