Norðurkóreskir hermenn drepnir í stríði Rússa

Norður-Kórea og Rússland hafa styrkt hertengsl sín eftir að Rússland …
Norður-Kórea og Rússland hafa styrkt hertengsl sín eftir að Rússland réðist inn í Úkraínu í febrúar 2022. AFP/KCNA VIA KNS

Yfir þúsund norðurkóreskir hermenn hafa verið drepnir eða særðir í stríði Rússlands og Úkraínu, að því er hershöfðingjar Suður-Kóreu segja.

Þá hafa að minnsta kosti hundrað norðurkóreskir hermenn verið drepnir síðan í byrjun desember.

Þúsundir norðurkóreskra hermanna hafa verið sendir til að styrkja rússneska herinn, þar með talið til landamæra Kúrsk-héraðsins, landsvæði sem hersveitir Úkraínu hertóku fyrr á þessu ári.

Samkvæmt tilkynningu frá hershöfðingjum Suður-Kóreu er stefnan að senda fleiri norðurkóreska hermenn til að aðstoða stríðsátök Rússa.

„Gagnkvæmur ávinningur“

Þá lítur út fyrir að Norður-Kórea sé að „framleiða og útvega sjálfeyðandi dróna“ til Rússlands til að aðstoða Moskvu enn frekar í baráttunni gegn Úkraínu.

Samkvæmt her Suður-Kóreu stefnir Norður-Kórea að því að nútímavæða hefðbundna hernaðargetu sína, á grundvelli bardagareynslu í stríðinu milli Rússlands og Úkraínu.

„Þetta gæti leitt til aukinnar hernaðarógnar norðursins í garð okkar,“ sögðu þeir.

Fregnir þessar samræmast skýrslu alþjóðlegu leyniþjónustunnar (e. National Intelligence Service), sem sagði líklegt að Rússland byði „gagnkvæman ávinning“ fyrir hernaðarframlög Norður-Kóreu, þar á meðal „nútímavæðingu hefðbundinna vopna Norður-Kóreu“.

Styrkt tengsl

Norður-Kórea og Rússland hafa styrkt hertengsl sín eftir að Rússland réðist inn í Úkraínu í febrúar 2022 en varnarsamningur milli höfuðborga landanna, sem undirritaður var í júní, tók gildi í þessum mánuði.

Norður-Kórea sagði sameiginlega yfirlýsingu Bandaríkjanna og bandamanna þeirra „kærulausa ögrun“, en þar er stuðningur Norður-Kóreu við stríð Rússa gagnrýndur, þar á meðal sending hermanna.

Suður-Kórea og Úkraína tilkynntu í síðasta mánuði að löndin myndu auka öryggissamstarf sitt til að bregðast við ógninni sem stafar af sendingu norðurkóreskra hermanna. Ekki var minnst á hugsanlegar vopnasendingar frá Seúl til Kænugarðs.

Yoon Suk Yeol, ákærður forseti Suður-Kóreu, sagði í nóvember að Seúl hefði „ekki útilokað möguleikann á að útvega vopn“ til Úkraínu, sem myndi marka umtalsverða breytingu á langvarandi stefnu þess að útiloka sölu vopna til landa í virkum átökum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert