Frosti: „Ég skal droppa sprengju hérna“

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason telur að tilnefningin á Robert F. Kennedy yngri sem heilbrigðisráðherra sé besta ráðherratilnefning Donalds Trumps, verðandi Bandaríkjaforseta. Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi hefur ekki trú á því að öldungadeild Bandaríkjaþings samþykki tilnefninguna.

„Ég skal droppa sprengju hérna. Ég held að þetta sé besta tilnefningin, fyrir það fyrsta, og hann eigi eftir að standa sig alveg ótrúlega vel,“ segir Frosti í Dagmálum.

Frosti og Friðjón mættu á dögunum í Dagmál þar sem rætt var um Donald Trump og meðal annars ríkisstjórn hans.

Frosti hefur mikla trú á Kennedy.
Frosti hefur mikla trú á Kennedy. Samsett mynd/mbl.is/AFP/Chip Somodevilla

Segir að mikill áróður sé keyrður gegn Kennedy

Frosti segir bersýnilegt að gegn Kennedy sé keyrður mikill áróður sem hefur einnig náð á Íslandsstrendur og bendir hann á frétt Ríkisútvarpsins í ágúst sem er með fyrirsögnina: Rugludallurinn Robert Kennedy.

Friðjón og Frosti tókust svo aðeins á um fjölda bólusetninga sem börn í Bandaríkjunum þyrftu að fara í.

Frosti sagði að Kennedy væri ekki á móti bólusetningum heldur vildi aðeins láta rannsaka það hvort að bóluefnin væru 100% örugg.

Friðjón benti á að bólusetning gegn mislingum væri sannreynd og hefði komið í veg fyrir mislingafaraldra í hinum vestræna heimi.

Hér er fréttin sem Frosti vísar í.
Hér er fréttin sem Frosti vísar í. Skjáskot/Ríkisútvarpið

Telur að Kennedy verði ekki samþykktur

„Burtséð frá þessu þá held ég að hann nái ekki í gegn vegna þess að hann er á leiðinni í stríð við bandaríska lyfjaiðnaðinn og heldur þú að bandaríski lyfjaiðnaðurinn gúteri það að hann verði gerður að heilbrigðisráðherra?,“ segir Friðjón en öldungadeildin þarf að samþykkja tilnefningar forseta. 

Ertu þá að segja að bandaríski lyfjaiðnaðurinn stjórni þingmönnunum?

„Ég held að stórfyrirtæki hafi gríðarleg áhrif í Bandaríkjunum. Hvort heldur er sem eru lyfjafyrirtæki eða önnur fyrirtæki,“ segir Friðjón.

Mikil þörf á því að brjóta upp heilbrigðiskerfið

Friðjón segir mikla þörf vera á því að brjóta upp heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum en hann hefur ekki trú á því að kennedy geti það.

„Ég vona að Kennedy, ef að Kennedy kemst inn, þá vona ég að hann geri eitthvað til að breyta norminu. En ég hef ekki trú á því,“ segir Friðjón

Í Dag­mál­um er farið yfir ástæður þess að Don­ald Trump vann for­seta­kosn­ing­arn­ar í Banda­ríkj­un­um og hvaða þýðingu kosn­ing­in hef­ur. Frosti og Friðjón ræða hvers má vænta með Trump í embætti næstu fjög­ur árin og þá ræða þeir einnig hvort að heim­ur­inn sé ör­ugg­ari eða óör­ugg­ari með Trump í embætti.

Áskrif­end­ur Morg­un­blaðsins geta horft á þátt­inn í heild sinni með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert